ADRENALÍN
30. október 2006 klukkan 20:03
Fimmtudagur, föstudagur, og Laugardagur alles dagene sehr gut
fim: hentist uppá spítala með vindlasendingu handa afa, gamli ætlaði sér nefnilega að strjúka af spítalanum til þess að kaupa sér vindla.... ekki sniðugt. Afi gamli var með sængina breidda uppfyrir haus þegar ég mætti með vindlana og súkkulaði til hans á fimmtudagskvöldið....ennþá í fötunum eftir fyrstu strok tilraunina
Seinna um kvöldið ætluðum við á jazz tónleika í kjallaranum á Horninu (elsti veitingastaðurinn á Íslandi)....fengum okkur að borða í staðinn og vorum sannkallaðir freeriders.
fös: ferðamálafræði nemar og kennarar hittust um kvöldið...alltaf gaman að hitta gamla vini...
lau: óvissuferð með vinnunni, Adrenalín garðurinn var fyrsta stoppið!!! Hólí Mólí ég réð ekki við líkamann á mér vegna adrenalínssjokks.... Þrjár þrautir og ég gat þær allar ...töffari!!!klifraði upp klifurvegginn ....ALLA Leið og ég stóð upprétt á tólf metra staur og hoppaði síðan fram af!! shit ég fæ í magann þegar ég hugsa um þetta aftur, síðasta þrautin var síðan rólan sem maður er líka hífður upp í 12 metra og sleppt síðan... ég fór í róluna á hvolfi!!! Sjett hvað þetta var magnað.... ég ætlaði aldrei að geta hætt að hlæja sjokkið var svo mikið að ég hreinlega réð ekki við mig...Leiðin lá síðan á snjósleða, en vegna ófærðar á Mýrdalsjökli náðist ekki að grafa upp sleðana í tæka tíð. Ekki létum við það nú stoppa okkur í þessari ævintýraferð heldur fórum við á fjórhjól í staðinn, sem var sko aldeilis ekki síðra. Við enduðum síðan í kvöldmat á Menam á Selfossi..bragðlaukarnir dönsuðu alveg hreint!!
Síðan lá leiðin í bæinn og beint í afmæli til Hrundar og þaðan í Rvk city...sólarhringur í vöku er ekki að gera manni gott á mánudegi í vinnu....
Ásdís Guđmundsdóttir
2 athugasemdir
2 athugasemdir
